Hin ýmsu þjónustustig Ganghesta
Við hjá Ganghestum bjóðum upp á alhliðaþjónustu fyrir hestamenn. Við aðstoðum viðskiptavini okkar við að finna rétta hestinn sama hvort um ræðir reiðhest, keppnishest, ræktunarhross eða ungviði. Einnig bjóðum við upp á reiðnámskeið og aðstoðum fólk að koma sér af stað með nýjan gæðing.
Ef það er kominn tími hjá þér til að “uppfæra” hestinn þinn þá erum við réttu aðilarnir til að tala við. Við aðstoðum þig við að selja gamla hestinn þinn og finna nýjan hest í staðinn.
Mörgum finnst ekkert skemmtilegra en að taka smá áhættu og kaupa sér ungan og efnilegan hest eða hryssu og temja sjálf. Við aðstoðum ykkur við að finna draumatrippið ef svo ber við.
Ef þú ert að leita þér að hrossum til ræktunar sama hvort um ræðir meri eða stóðhest aðstoðum við þig við það. Einnig höfum við á okkar snærum úrval af bæði reyndum og efnilegum stóðhestum til undaneldis og er hægt að sjá allar upplýsingar um þá undir hrossin okkar og stóðhestar.
Einnig tökum við að okkur tamningu og þjálfun hrossa á öllum stigum þ.e. frumtamningar, þjálfun, keppni og sýningu kynbótahrossa og að sjálfsögðu tökum við hross í umboðssölu.
Ef þú telur að við getum aðstoðað þig á einhvern hátt þá endilega hafðu sambandi við okkur í síma 897 1713 (Siggi) og/eða 777 8002 (Edda Rún) sendu okkur línu á info@ganghestar.is eða einfaldlega smelltu hér .