Glymur er fæddur 2006 og er undan Álfi frá Selfossi og gæðingamóðurinni Sólvá frá Akureyri. Hann er rauðskjóttur að lit eins og faðir sinn. Nánari upplýsingar um Glym er að finna á heimasíðu hans, www.limur.123.is.
Limsfélagar höfðu ærið tilefni til að fagna þar sem kynbótasýningin síðasta sumar heppnaðist einstaklega vel en hann hlaut 8,24 í aðaleinkunn sem skiptist í 8,28 fyrir sköpulag og 8,21 fyrir hæfileika. Glymur er sem stendur hæst dæmdi stóðhesturinn undan Álfi.
Um kvöldið veitti Ræktunardeild Fáks þeim félagsmönnum viðurkenningu sem ræktuðu hæst dæmdu kynbótahrossin í hverjum aldursflokki. En þau voru eftirfarandi:
Hryssur:
4 vetra - Ríma frá Auðsholtshjáleigu, ræktendur Gunnar Arnarson og Kristbjörg Eyvindsdóttir
5 vetra - Oktavía frá Feti, ræktandi Brynjar Vilmundarson
6 vetra - María frá Feti, ræktandi Brynjar Vilmundarson
7 vetra - Glæða frá Þjóðólfshaga, ræktendur Sævar Haraldsson og Sigurður Sigurðarson
Stóðhestar:
4 vetra - Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu, ræktandi Þórdís Erla Gunnarsdóttir
5 vetra - Þrumufleygur frá Álfhólum, ræktandi Rósa Valdimarsdóttir
6 vetra - Konsert frá Korpu, ræktandi Ragnar Hilmarsson
7 vetra - Héðinn frá Feti, ræktandi Brynjar Vilmundarson
Nánast var húsfyllir á þessu einstaklega vel heppnaða kvöldi og voru veitingarnar ekki af verri endanum en boðið var upp á hrossakjötsveislu. Ræðumaður kvöldsins, Guðni Ágústsson, fór á kostum eins og honum er einum lagið líkt og ætlaði þakið að fara af húsinu á köflum. Kristinn Hugason og Guðni Ágústsson voru jafnframt vígðir inn í Limsfélagið. En ekki minnkuðu fagnaðarlætin þegar heiðursgesturinn sjálfur, Glymur frá Leiðólfsstöðum, mætti á svæðið. En eflaust er hægt að telja þá hesta á fingrum annarrar handar sem hafa orðið það frægir að stíga dansinn á gólfinu í félagsheimili Fáks.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á Limskvöldinu og þegar Glymur prófaði rauða dregilinn fyrr um daginn. Fleiri myndir er hægt að sjá á heimasíðu Limsfélagsins, www.limur.123.is.

